Jæja þá eru menn komnir heim eftir mjög góða ferð. Það gekk rosa
vel að keyra vestur, bjargaði okkur alveg að tengdamamma var afturí
að sinna Söru, henni fannst ekkert voða gaman að sitja svona lengi
í bíl. Við vorum um 6 1/2 tíma vestur og fórum eiginlega bara beint
á Flateyri eftir Bónusferð. Eyddum öllum dögunum í frábæru veðri,
skoðuðum það sem hægt var að skoða, gerðum það sem við ætluðum að
gera og hittum þá sem við ætluðum að hitta
Við vorum
ótrúlega heppin með veður, það ringdi bara aðeins smá á
föstudeginum annars var bara sól og logn og endalaus blíða. Sem
gerist víst ekki á hverjum degi þarna á Vestfjörðunum. Heimferðin
var aðeins erfiðari, við ákváðum að fara Barðaströndina heim, í
staðin fyrir djúpin, og það tók aðeins lengri tíma en við áttum von
á, við lögðum af stað á slaginu 9 og renndum í
bæinn 16:46 og það var ekkert klósett í 4 1/2 tíma! Alla
leið frá Þingeyri og í Búðardal er bara ekkert, reyndar 2 sjoppur
opnar á sumrin ennnn það gagnast manni ekki á veturnar! Ég var
alvega að pissa í bussurnar og gjörsamlega að drepast úr
hungri! Búin að hringja í pabba og kvarta og heimta aðgerðir
að hálfu ríkisinns. Finnst samt alveg fáránlegt að það sé ekki
malbikað alla leið! HALLÓ það er 2007 og það er ekki malbikað! Það
reyndar er samt bara vegna þess að Reykvíkingar fljúga bara til
Ísafjarðar og fara ekkert annað á Vestfjörðunum!
Reyndar á nú að
fara að gera einhverjar bætur á vegunum þarna og stytta þá aðeins.
Ég held að það sé rosa fínt að búa á Ísafirði, EF það væri ekki
snjóflóðahætta og það tæki ekki 8 tíma að komast þaðan í burtu.
Annars er bara ótrúlegt að fólk skuli búa í þessum þorpum
þarna! Dáist af því að nenna því. Ég reyndar held að eftir nokkur
ár þá verða þessi þorp annað hvort ekki til eða bara
útlendingarþorp. Sorglegt að einn maður geti ráðið örlögum heils
þorps og hundruði manna.
Og í þessum skrifuðu orðum kom enn ein hunangsfluga inn til
okkar og réðst á mig!
Mér er svo illa við þessi dýr! Og mér
finnst dáldið sorglegt að það skuli vera komið til þess að við
þurfum að setja flugnanet fyrir alla gluggana hjá okkur! Það voru 2
inn í þvottahúsi á fimmtudaginn og svo í gær kom ein inn á bað þar
sem við gistum á Flateyri, við reyndar héldum að hún væri farin en
svo í morgun fór e´g í sturtu og þegar ég var búin (sem betur
fer) þá lifnaði hún við og sveimaði út um allt. Siggi frændi hans
Sævars, Siggi hetja, fylgdi henni svo út og bjargaði okkur. Nú bíð
ég eftir að Sævar (sem er hræddur við þetta líka en neyðist til að
eiga við þetta því ég nota alltaf "þú ert karlmaðurinn" spilið
að hann sem sagt komi heim og nái henni út eða drepi hana
Þangað til stend ég hérna tilbúin að flýja.
En já við sem sagt erum komin heim, erum mjög ánægð með að
hafa ákveðið að taka Hilmar ekki með, greyið barnið hefði tapað sér
í pirringi á því að sitja svona lengi í bíl og vera endalaust að
keyra fram og til baka í ógeðfeldum göngum. Þó það hefði verið rosa
gaman að hafa hann með þá hefði ekki verið sniðugt að leggja allt
þetta á hann.
En ég ætla að fara og fylgjast með Röndu 
Kvittið fyrir komuna ... Þú líka!